Fáni
Helstu tölur og staðreyndir
Höfuðborg: | Nassá |
Þjóðernishópar: | Afrískur uppruni 90,6%, evrópskur uppruni 4,7%, afrískur og evrópskur uppruni 2,1%, annað/ótilgreint 2,6% (2010) |
Tungumál: | Enska (opinbert), Creole (meðal innflytjenda frá Haítí). |
Trúarbrögð: | Mótmælendur 69,9%, rómversk-kaþólskir 12%, aðrir kristnir 13%, enginn 1,9%, aðrir/ótilgreindir 3,2% (2010) |
Íbúafjöldi: | 393 244 (2020) |
Stjórnarform: | Stjórnskipulegt lýðræði |
Gjaldmiðill: | Bahamískur dalur |
Þjóðhátíðardagur: | 10. júlí |
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: | 40 379 PPP$ |
Landafræði
Bahamaeyjar samanstanda af 15 stórum og nærri 700 litlum eyjum. Eyjaklasinn nær yfir 800 km, frá Haíti í suðaustri til Flórídafylkis í norðvestri, og eru um það bil 2400 rif og sandrif innan hennar. Fjórar stærstu eyjarnar, Andros, Great Abaco, Great Inagua og Grand Bahama ná yfir meira en tvo þriðju af heildar landsvæði eyjananna, þar sem finna má stór og mikil skógsvæði. Aðgangur eyjaskeggja að ferskvatni er mjög takmarkaður. Engar ár eru á svæðinu og regnvatn hverfur nánast samstundis ofan í gljúpan kalksteininn. Því þurfa íbúar eyjanna að safna saman regnvatni í brunna og laugar.
Á eyjunum er hitabeltisloftslag, þar sem veturnir eru mildir og sumrin hlý. Regntímabilið stendur frá júní og fram í september. Á haustin verða eyjarnar oft fyrir barðinu á hitabeltistormum, sem geta valdið gífurlegum eyðileggingum. Landið er mjög viðkvæmt fyrir loftlagsbreytingum og þolir vistkerfi sjávarins ekki mikla hitabreytingu. Þar sem 80% af landsvæðinu er einungis 1.5 metra yfir sjávarmáli, er landið mjög viðkvæmt fyrir hækkandi yfirborði sjávar.
Saga
Sagan segir að fyrsta stopp Kristófers Kólumbusar í “Nýja Heiminum”, hafi verið á Bahamaeyjum árið 1492. Spánverjar höfðu takmarkaðan áhuga á eyjaklasanum, þar sem lítið var um eðalsteina á þeim. Í staðinn nýttu þeir Arawakana, sjómenn Bahamaeyjanna, sem þræla í gullnámum annars staðar í spænska heimsveldinu. Í lok ársins 1520 var búið að flytja alla eyjarskeggja á brott. Það var ekki fyrr en 100 árum síðar þegar Bretar gerðu sér grein fyrir verðmætri staðsetningu eyjanna og gerðu þær að nýlendum sínum. Allt að 19. öld byggðist efnahagur íbúa eyjunnar af þrælasali, sjóránum og smygli. Hvíta yfirstéttin stjórnaði í 300 ár, en 1942 byrjuðu svartir verkamenn að mótmæla launamisrétti og 11 árum síðar varð fyrsti stjórnmálaflokkur landsins stofnaður.
Frjálslyndi flokkurinn (PLP) sameinaði svarta íbúa landsins og jukust áhrif hans jafnt og þétt þar til ársins 1973 þegar Bahamaeyjar fengu sjálfstæði frá Bretlandi og PLP fór með stjórn landsins fram til ársins 1992. Síðan að landið öðlaðist sjálfstæði hefur því verið stjórnað af tveimur stjórnmálaöflum. Frjálsa Þjóðarhreyfingin (FNM), var stofnuð árið 1973 og tók við völdum af PLP í kosningum árið 1992, en þá sat PLP undir ásökunum um spillingu. PLP tók svo aftur við völdum 10 árum seinna.
Vistfræðileg fótspor
2,5
jarðarkúlur Bahamaeyjar
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Bahamaeyjar, þá þyrftum við 2,5 jarðar.
Vistfræðileg fótsporSamfélag og stjórnmál
Bahamaeyjar eru þingbundið lýðræðisríki. Landið er hluti af Samveldi þjóðanna og hefur haldið breska þjóðhöfðingjanum sem opinberum þjóðhöfðingja. Breski þjóðhöfðinginn á fulltrúa í landinu í gegnum ríkisstjóra. Framkvæmdarvaldið liggur hjá ríkisstjórninni, sem er undir forsætisráðherra. Forsætisráðherrann er í þeim flokki sem fær flest atkvæði í almennum kosningum í neðri deild þingsins. 'House of Commons' er hluti af 'National Assembly', sem ásamt efri deild myndar löggjafarvald.
Bahamaeyjar eru stöðugt lýðræðisríki þar sem pólitísk réttindi íbúanna eru uppfyllt, en mismunun og ofbeldi eru vaxandi samfélagsleg vandamál. Frá 1960 hafa margir Haítí og Kúbu farandverkamenn komið til Bahamaeyja. Innflutningur fólks hefur leitt til félagslegrar spennu - sérstaklega milli Haítíbúa og Bahamabúa.
Frá því snemma á 21. áratugnum hefur glæpum á Bahamaeyjum fjölgað verulega, meðal annars morðum. Landið hefur lengi verið paradís fyrir peningaþvætti og eiturlyfjasölu. Bandaríska strandgæslan vinnur nú náið með Bahamaeyjum að því að stöðva smygl. Ofbeldi gegn konum er útbreitt vandamál og telst ekki ólöglegt á heimilinu. Í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2016 voru ný lög gegn kynjamismunun samþykkt með miklum meirihluta.
Tölfræði
Á þessari síðu er gildi fyrir landið Bahamaeyjar fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir
Atvinna
Atvinnuleysi
Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.
1,0
af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Bahamaeyjar
Fátækt
Verg landsframleiðsla (VLF) á mann
Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti
40 379
VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Bahamaeyjar
Lífskjör
51 / 169
HDI-lífskjör Bahamaeyjar
Bahamaeyjar er númer 51 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHungur
Hlutfall íbúa sem eru vannærðir
Gögn vantar
Heilsa
Drykkjarvatn
Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni
Gögn vantar
Bóluefni
Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum
8,2
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Bahamaeyjar
Jafnrétti
Kynjamismunun
Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.
0,329
GII-vísitala í Bahamaeyjar
Loftslag
Vistfræðileg fótspor
2,5
jarðarkúlur Bahamaeyjar
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Bahamaeyjar, þá þyrftum við 2,5 jarðar.
Vistfræðileg fótsporCO2-losun
Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar
6,04
fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Bahamaeyjar
Mannfjöldi
Íbúar
Fólksfjöldi Bahamaeyjar
Fæðingartíðni
Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast
1,4
Fæðingartíðni Bahamaeyjar
Barnadauði
Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn
13
af hverjum 1000 börnum sem fæðast Bahamaeyjar
Menntun
Læsi og skrifleg færni
Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi
Gögn vantar