Fáni
Helstu tölur og staðreyndir
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: | 21 512 PPP$ |
Landafræði
Mexíkó er fjórtánda stærsta land veraldar. Meira en helmingur þess liggur meira en þúsund metrum yfir sjávarmáli. Loftslagið er heitara við strandlengjuna en temprað á hálendinu. Mexíkóborg, höfuðborg landsins, er staðsett í 2300 metra hæð yfir sjávarmáli á miklu eldfjallasvæði. Miðhluti landsins samanstendur af hásléttum sem eru umkringdar fjallgörðunum Sierra Madre Occidental í vestri og Sierra Madre Oriental í austri . Þrátt fyrir að um það bil helmingur landsins sé eyðimörk má þar finna skógi vaxin fjöll, frjósama dali og stóra regnskóga. Skógeyðing er þó vandamál í landinu, ásamt loft- og vatnsmengun og útrýmingu dýrategunda. Olíulekinn í Mexíkóflóa hefur sett umhverfið í enn frekari hættu. Þann 20. apríl 2010 sprakk borpallurinn „Deepwater Horizon“ og sökk í kjölfarið. Gífurlegt magn olíu lak út í hafið í kjölfar slyssins og náði lekinn til nærliggjandi stranda. Olíulekanum hefur verið lýst sem stærsta olíumengunarslysi sögunnar. Í Mexíkóflóa má finna tæplega 1% af kóralrifum heimsins og þar búa 56 tegundir sjávarspendýra. Enn er ekki hægt að segja til um hvaða langvarandi áhrif slysið muni hafa á umhverfið og dýralífið.
Saga
Talið er að rekja megi sögu Mexíkó um það bil 20.000 ár aftur í tímann. Fyrsti þjóðflokkurinn sem setti svip sinn á sögu landsins voru Olmekar. Þeir voru frumbyggjar sem þróuðu með sér flókna byggingarlist allt frá árinu 1000 f.kr. í miðhluta landsins. Síðan þá hafa margir ættbálkar frumbyggja átt búsetu í Mexíkó, á ólíkum tímum. Á síðustu öldum hefur Mexíkó átt í ýmsum pólitískum deilum og ráðist hefur verið inn í landið frá Spáni, Norður-Ameríku og Frakklandi. Landnám Evrópumanna byrjaði árið 1519 þegar Spánverjinn Hernán Cortés gerði Mexíkó að spænskri nýlendu og var landið undir stjórn Spánverja allt til ársins 1821 þegar landið öðlaðist sjálfstæði. Árið 1845 gerðu Bandaríkin kröfu til landsvæðisins Texas, sem þá var hluti af Mexíkó. Það leiddi til átaka milli landanna sem enduðu með því að Mexíkanar misstu helming landsvæðis síns. Í kringum 1860 réðust Frakkar inn í landið og hernámu það, en drógu herafla sinn til baka fáeinum árum seinna. Stuttu eftir að Frakkar drógu her sinn úr landinu tók einræðisstjórn Porfirio Díaz við og jók það enn á spennu í landinu. Uppreisn gegn einræðistjórninni hófst árið 1910 og varði í tíu ár. Uppreisnin beindist í fyrstu gegn einræðistjórninni, en varð að lokum barátta fyrir félagslegu jafnrétti og mannréttindum. Eftir 1940 komst aukið jafnvægi á í landinu, bæði félagslega og efnahagslega.
Vistfræðileg fótspor
1,4
jarðarkúlur Mexíkó
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Mexíkó, þá þyrftum við 1,4 jarðar.
Vistfræðileg fótsporSamfélag og stjórnmál
Mexíkó er sambandslýðveldi með 31 meðlimsríki og eitt alríkissvæði (e. federal district) sem er einnig höfuðborg landsins. Ríkisvaldið er þrískipt og er skiptingin í löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. Forseti landsins er handhafi framkvæmdavaldsins. Forsetinn er kosinn til sex ára í senn, en Felipe Calderón Hinojosa hefur gegnt embætti forseta síðan 2006. Calderón er meðlimur kristilega íhaldsflokksins PAN, en helstu baráttumál hans eru fríverslunarsamningur við Bandaríkin og einkavæðing opinbers reksturs. Eitt af helstu félagslegu baráttumálum Calderóns eru varnir gegn eiturlyfjatengdri glæpastarfsemi, vandamáli sem hefur stigmagnast á undanförnum árum í Mexíkó ásamt spillingu. Misskipting tekna og auðs er gífurleg í Mexíkó og býr um helmingur íbúanna við fátækt. Tjáningarfrelsið er að sama skapi takmarkað og hafa stjórnvöld í landinu átt í vandræðum með að tryggja verndun borgaralegra réttinda íbúanna.
Lífskjör
68 / 169
HDI-lífskjör Mexíkó
Mexíkó er númer 68 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHagkerfi og viðskipti
Árið 1994 gekk djúp efnahagsleg lægð yfir Mexíkó og pesóinn veiktist gífurlega. Þessi efnahagslega lægð var sú versta sem landið hafði gengið í gegnum síðan á fjórða áratug seinustu aldar. Á seinni árum hefur ástandið batnað umtalsvert og er efnahagur landsins nú meðal þeirra fimmtán sterkustu í heiminum. Í Mexíkó er opið markaðshagkerfi og hefur ekkert annað land gert jafn marga fríverslunarsamninga. Efnahagur landsins er mjög viðkvæmur fyrir sveiflum í bandaríska hagkerfinu, enda eru löndin tengd sterkum böndum. Um 86% af útflutingi landsins fer til Bandaríkjanna og 66% af innflutningi þess koma frá Bandaríkjunum. Mexíkó varð því illa útí í efnahagskreppunni sem hófst árið 2008. Landið er stærsti silfurframleiðandi heims og fimmti stærsti olíuframleiðandi.
Tölfræði
Á þessari síðu er gildi fyrir landið Mexíkó fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir
Atvinna
Atvinnuleysi
Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.
0,3
af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Mexíkó
Fátækt
Verg landsframleiðsla (VLF) á mann
Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti
21 512
VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Mexíkó
Lífskjör
68 / 169
HDI-lífskjör Mexíkó
Mexíkó er númer 68 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHungur
Hlutfall íbúa sem eru vannærðir
0,7
Hlutfall vannærðra íbúa Mexíkó
Heilsa
Drykkjarvatn
Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni
4,3
af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Mexíkó
Bóluefni
Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum
9,9
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Mexíkó
Jafnrétti
Kynjamismunun
Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.
0,309
GII-vísitala í Mexíkó
Loftslag
Vistfræðileg fótspor
1,4
jarðarkúlur Mexíkó
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Mexíkó, þá þyrftum við 1,4 jarðar.
Vistfræðileg fótsporCO2-losun
Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar
3,04
fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Mexíkó
Mannfjöldi
Íbúar
Fólksfjöldi Mexíkó
Fæðingartíðni
Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast
1,8
Fæðingartíðni Mexíkó
Barnadauði
Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn
13
af hverjum 1000 börnum sem fæðast Mexíkó
Menntun
Læsi og skrifleg færni
Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi
9,5
af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Mexíkó