Fáni
Helstu tölur og staðreyndir
Höguðborg: | Niamey |
Þjóðernishópar: | Hausa 53%, Djerma/Songhai 21%, Tuareg 11%, Fulani 6,5%, Kanuri 6% aðrir (þar á meðal Gurmas, Arabar og Tubu) 3% (2006) |
Túngumál: | Franska (opinbera) Hausa, Djerma |
Trúarbrögð: | Múslimar 99,3%, aðrir (þar á meðal ættbálkatrúarbrögð og kristnir) 0,6% |
Íbúafjöldi: | 27 202 843 (2023) |
Stjórnarform: | Lýðveldi |
Svæði: | 1 267 000 km² |
Gjaldmiðill: | CFA franki |
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: | 1 505 PPP$ |
Þjóðhátíðardagur: | 18. desember |
Landafræði
Stærsti hluti Níger er flatlendi, en þó eru lítil hálendissvæði þar. Meira en helmingur landsins er hluti af Sahara-eyðimörkinni til norðurs. Þar einkennist landsvæðið af sandöldum og risavöxnum steinhelllu- og klettasvæðum. Í suðri má finna hitabeltisgresjur og þar er einnig hitabeltisloftslag. Áin Níger, sem er þriðja lengsta á í Afríku, rennur í gegnum þetta svæði. Eyðimerkurvindar lama stundum flugsamgöngur og hefur rykið úr þeim fundist í Karabíska hafinu. Eyðimerkurnar fara sífellt stækkandi og því hefur ræktunarland minnkað talsvert í Níger. Vatnsskortur er einnig viðvarandi vandamál á svæðinu og hefur vatnsmagnið í ánni Níger minnkað talsvert. Á landamærum Tsjad, Níger, Nígeríu og Kamerún liggur Tsjad stöðuvatnið, sem er eitt stærsta stöðuvatn í álfunni. Vatnið sér tuttugu milljónum manna fyrir vatni, en það hefur einnig minnkað talsvert vegna þurrka.
Saga
Níger hefur verið skipt í tvo hluta frá fornu fari og hafa svæðin mismunandi menningu og sögu. Í norðri má finna samfélög hirðingja en í suðri má finna bændasamfélög. Mikil átök hafa átt sér stað á milli þjóðflokka á svæðinu í gegnum tíðina. Undir lok 19. aldar tóku Frakkar yfir hluta af Níger og árið 1922 varð landið allt að franskri nýlendu. Þegar sambandsríkið „Franska Vestur-Afríka“ leystist upp árið 1960 varð Níger að sjálfstæðu ríki undir stjórn Hamani Diori, forseta landsins. Árið 1974 stýrði herforinginn Seyni Kountché valdaráni með þeim afleiðingum að hernaðarlegt ráð tók yfir stjórn landsins. Forseta landsins var steypt af stóli, þingið var leyst upp og stjórnmálaflokkar bannaðir. Tuttugu árum seinna varð landið að lýðræðisríki og árið 1993 voru fyrstu lýðræðislegu forsetakosningar í sögu landsins haldnar.
Vistfræðileg fótspor
0,9
jarðarkúlur Níger
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Níger, þá þyrftum við 0,9 jarðar.
Vistfræðileg fótsporSamfélag og stjórnmál
Níger er í grunninn lýðræðislega stjórnað lýðveldi. Forseti er kosinn í almenninum kosningum og er kjörtímabilið fimm ár. Mamadou Tandj bar sigur úr býtum í forsetakosningunum árið 1999 og var endurkjörinn fimm árum seinna. Árið 2009 reyndi hann þó að þröngva í gegn stjórnarskrárbreytingum sem gerðu honum kleift að vera enn lengur við völd. Þessar aðgerðir hans leiddu til óróleika í landinu og fordæmingu erlenda stjórnvalda. Snemma árs 2010 tók svo herinn yfir stjórn landsins.
Meðal lífslíkur í Níger eru 44 ár, sem eru með þeim lægstu í heimi. Þar er einnig kerfisbundið brotið gegn konum og þeim mismunað. Á milli 5-20% kvenna í landinu eru umskornar. Í byrjun 20. aldarinnar fóru að heyrast háværar kröfur frá hluta samfélagsins um að innleiða ætti Sharía lög í öllu ríkinu, en í íslamska hluta landins eru þau við lýði. Þó er aðskilnaður milli ríkis og kirkju í Níger í dag.
Níger er í grunninn lýðræðislega stjórnað lýðveldi. Forseti er kosinn í almenninum kosningum og er kjörtímabilið fimm ár. Mamadou Tandj bar sigur úr býtum í forsetakosningunum árið 1999 og var endurkjörinn fimm árum seinna. Árið 2009 reyndi hann þó að þröngva í gegn stjórnarskrábreytingum sem gerðu honum kleift að vera enn lengur við völd. Þessar aðgerðir hans leiddu til óróleika í landinu og fordæmingu erlenda stjórnvalda. Snemma árs 2010 tók svo herinn yfir stjórn landsins en stóð við það loforð sitt að efna til forsetakosninga ári síðar. 2011 voru svo kosningar haldnar og sigraði stjórnarandstæðingurinn Mahamadou issoufou.
Meðal lífslíkur í Níger eru 44 ár, sem eru með þeim lægstu í heimi. Þar er einnig kerfisbundið brotið gegn konum og þeim mismunað. Á milli 5-20% kvenna í landinu eru umskornar. Í byrjun 21. aldarinnar fóru að heyrast háværar kröfur frá hluta samfélagsins um að innleiða ætti Sharía lög í öllu ríkinu, en í íslamska hluta landins eru þau við lýði. Þó er aðskilnaður milli ríkis og kirkju í Níger í dag. Í Níger er töluverð hætta á hungursneyð og má lítið út af bera í matarframleiðslu og landbúnaði ef íbúar landsins eiga að hafa nægan mat.
Lífskjör
167 / 169
HDI-lífskjör Níger
Níger er númer 167 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHagkerfi og viðskipti
Níger er eitt af fátækustu löndum heims. Meirihluti þeirra sem eru virkir í efnahagslífinu eru bændur. Í Níger má finna stærstu birgðir heimsins af úrani, sem er mikilvægasta útflutningsvara landsins. Búfénaður er þó líka mikilvæg útflutningsvara. Árið 2004 hófst vinnsla á gulli í landinu og hefur það leitt til talsverðrar aukningar í erlendri fjárfestingu i landinu. Einnig má finna talsverðar olíubirgðir í austurhluta landsins. Þrátt fyrir þetta er talið að allt að 70% af allri atvinnustarfsemi í landinu fari fram á svörtum markaði. Svarti markaðurinn er tengdur ólöglegri og óskráðri verslun í nágrannalöndunum sterkum böndum. Níger er mjög tengt Nígeríu og gerir það að verkum að efnahagsástandið ræðst af miklu leyti af efnahagsástandinu í Nígeríu, sem er stórveldið á þessu svæði.
Tölfræði
Á þessari síðu er gildi fyrir landið Níger fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir
Atvinna
Atvinnuleysi
Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.
0,1
af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Níger
Fátækt
Verg landsframleiðsla (VLF) á mann
Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti
1 505
VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Níger
Lífskjör
167 / 169
HDI-lífskjör Níger
Níger er númer 167 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHungur
Hlutfall íbúa sem eru vannærðir
Gögn vantar
Heilsa
Drykkjarvatn
Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni
Gögn vantar
Bóluefni
Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum
8,0
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Níger
Jafnrétti
Kynjamismunun
Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.
0,611
GII-vísitala í Níger
Loftslag
Vistfræðileg fótspor
0,9
jarðarkúlur Níger
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Níger, þá þyrftum við 0,9 jarðar.
Vistfræðileg fótsporCO2-losun
Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar
0,09
fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Níger
Mannfjöldi
Íbúar
Fólksfjöldi Níger
Fæðingartíðni
Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast
6,7
Fæðingartíðni Níger
Barnadauði
Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn
115
af hverjum 1000 börnum sem fæðast Níger
Menntun
Læsi og skrifleg færni
Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi
3,8
af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Níger