Fáni

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg: Ankara
Þjóðernishópar: Tyrkir 70-75%, kúrdar 18%, aðrir minnihlutahópar 7-12%. (2008)
Túngumál: Tyrkneska, kúrdíska, dimli, azeri, kabardian
Trúarbrögð: Múslímar 99,8%, aðrir 2%
Stjórnarform: Lýðveldi
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: 37 274 PPP$

Landafræði

Í suður- og norðurhluta Tyrklands, við Miðjarðarhaf og Svartahaf, eru vinsælir áfangastaðir evrópskra ferðamanna. Í austri mynda fjöll náttúruleg landamæri við nágrannalöndin Írak og Íran. Í miðju landsins er hálendi, þar sem meðalhæð er 1000 metrar yfir sjávarmáli. Vesturhluti landsins er að mestu láglendar sléttur sem henta vel til landbúnaðar. Tyrkland liggur á mörkum jarðskorpufleka sem hefur leitt til tíðra jarðskjálfta, oft með hörmulegum afleiðingum. Loftslagið er mjög breytilegt, temprað miðjarðarhafsloftslag í suðvestri og kalt meginlandsloftslag í fjöllunum í norðaustri. Tyrkland stendur frammi fyrir miklum umhverfisvandamálum – jarðvegseyðing hefur skemmt meira en helming ræktanlegs lands og loftmengun í borgunum hefur aukist gífurlega undanfarin ár. Vegna lélegrar stjórnunar hafa mörg fyrirtæki komist upp með að losa sig við eiturefnaúrgang í árnar. Stjórnun landsins hefur batnað eftir að ríkið hóf aðildarviðræður við ESB árið 1999, en enn er þó langt í land.

Saga

Í Tyrklandi eru í dag síðustu leifar Ottóman-keisaradæmisins, sem frá 1300–1550 var eitt af valdamestu ríkjum heims. Keisaradæmið var stofnað í lok 13. aldar, þegar Mongólar höfðu hrakið flesta múslíma þaðan sem í dag er Írak og Íran inn í Tyrkland þar sem þeir sameinuðust undir Óman hinum fyrsta. Á hátindi sínum náði Ottóman-keisaradæmið yfir alla Norður-Afríku, mestan hluta Suðaustur-Evrópu og stóra hluta Asíu. Á 19. öld fór að halla undan fæti og keisaradæmið missti stöðugt meira landsvæði. Eftir að hafa tekið þátt í fyrri heimsstyrjöldinni og tapað (1914-1918) hrundi keisaradæmið og árið 1924 var því sem eftir var af ríkinu breytt í tyrkneska lýðveldið, stofnað af Mustafa Kemal – Atatürk („faðir tyrkja“). Allt sem tengdi saman trú og ríki var fjarlægt og kveðið var á um algeran aðskilnað á milli ríkis og trúar í stjórnarskránni. Atatürk dó árið 1938 en flokkurinn sem hann stofnaði var við völd fram til ársins 1950, þegar Lýðveldisflokkurinn komst til valda. Næstu þrír áratugir einkenndust af pólitískum óstöðugleika, með valdaránum hersins árin 1960, 1971 og 1980, af mismunandi ástæðum. Á tveimur síðustu áratugum síðustu aldar barðist herinn gegn kúrdísku skæruliðahreyfingunni PKK í austurhluta landsins.

Vistfræðileg fótspor

9 10

2,0

jarðarkúlur Tyrkland

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Tyrkland, þá þyrftum við 2,0 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

Samfélag og stjórnmál

Tyrklandi er stjórnað af kjörnum forseta og ríkisstjórn sem er tilnefnd af þinginu. Tyrknesk stjórnmál einkennast af spennu á milli stjórnmálamanna og stofnana í ríkiseigu, eins og dómskerfisins og hersins. Dómstólarnir líta á það sem sína ábyrgð að viðhalda hinni andtrúarlegu stefnu sem er arfleifð „föður“ landsins, Kemal Atatürk. Þeir hafa nokkrum sinnum bannað stjórnmálaflokka sem gefa í skyn að þeir hyggist blanda saman trúmálum og stjórnmálum. Herinn hefur mjög mikil áhrif á Þjóðarráðið, sem er æðsta stofnun Tyrklands í öryggismálum. Þrátt fyrir mörg valdarán hefur herinn oftast afsalað sér völdum til nýkjörinna ríkisstjórna eftir stuttan tíma. Undanfarin ár hefur hinn íslamski jafnréttis- og þróunarflokkur notið mests fylgis og myndað nokkrar ríkisstjórnir. Tyrkland er félagslega skipt land með gífurlegum mun á menntunarstigi og tekjum íbúa borganna í vestri og minni þorpa í austri. Kúrdíski minnihlutinn í austri, sem er um það bil 20 prósent af íbúum landsins, hefur verið kúgaður í áraraðir. Á tímabilinu frá 1984-1999 var stríð á milli kúrdísku skæruliðahreyfingarinnar PKK og tyrkneska hersins. Landið hefur um árabil verið sakað um gróf mannréttindabrot, sérstaklega gegn kúrdíska minnihlutanum og pólitískum föngum. Undanfarin ár hefur ríkisstjórnin stuðlað að breytingum til að bæta ástandið svo að landið uppfylli skilyrði aðildar að ESB.

Lífskjör

17

42 / 169

HDI-lífskjör Tyrkland

Tyrkland er númer 42 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hagkerfi og viðskipti

Grundvallarþáttur í hugmyndafræði Atatürk, stofnanda Tyrklands nútímans, var að ríkið skyldi stjórna stærstum hluta efnahagsins. Á níunda áratugnum var hafist handa við að einkavæða hluta fyrirtækja í ríkiseigu, ríkið gegnir þó enn mikilvægu efnahagslegu hlutverki í landinu. Einkavæðingunni var ekki fylgt eftir með viðeigandi reglugerðum, sem hefur haft í för með sér umfangsmikla spillingu og ýmislegt bendir til þess að svarti markaðurinn samsvari um það bil 50 prósent af vergri landsframleiðslu landsins. Undanfarin ár hefur fjöldaframleiðsla á bílum og rafmagnsvörum orðið sífellt stærri hluti af efnahagnum á meðan hlutur landbúnaðar hefur minnkað. Landið er þó enn eitt af stærstu landbúnaðarlöndum heims og er sjálfbært um mat. Tyrkland hefur búið við stöðugan efnahagslegan vöxt frá árinu 2000, undantekning varð þó á þegar alþjóðlega fjármálakreppan reið yfir heiminn árið 2009.

Tölfræði

Á þessari síðu er gildi fyrir landið Tyrkland fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir

Atvinna

Atvinnuleysi

Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.

0 10 10 10 10 10 10 10 10 10

1,0

af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Tyrkland

Atvinnuleysi

Fátækt

Verg landsframleiðsla (VLF) á mann

Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti

10

37 274

VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Tyrkland

Tölfræði um VLF í PPP

Lífskjör

17

42 / 169

HDI-lífskjör Tyrkland

Tyrkland er númer 42 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hungur

Hlutfall íbúa sem eru vannærðir

Tölfræði - vannæring

Heilsa

Drykkjarvatn

Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni

Tölfræði um drykkjarvatn

Bóluefni

Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum

10 10 10 10 10 10 10 10 10 6

9,6

af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Tyrkland

Tölfræði um bólusetningar gegn mislingum

Jafnrétti

Kynjamismunun

Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.

3

0,272

GII-vísitala í Tyrkland

GII - vísitala um kynjamismunun

Loftslag

Vistfræðileg fótspor

9 10

2,0

jarðarkúlur Tyrkland

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Tyrkland, þá þyrftum við 2,0 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

CO2-losun

Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar

10 10 10 10 8

4,84

fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Tyrkland

Tölfræði um losun koltvísýrings á íbúa

Mannfjöldi

Íbúar

85 816 199

Fólksfjöldi Tyrkland

Fólksfjöldi

Fæðingartíðni

Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast

Fæðingartíðni

Barnadauði

Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn

1 2 3 4 5 6 7 8 9

9

af hverjum 1000 börnum sem fæðast Tyrkland

Barnadauði

Menntun

Læsi og skrifleg færni

Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi

10 10 10 10 10 10 10 10 10 7

9,7

af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Tyrkland

Tölfræði um ólæsi

Kort af Tyrkland